Kampavínshúsið Louis Roederer var upphaflega stofnað árið 1776 sem Dubois Père & Fils. Á þeim tíma voru einungis um 10 kampavínshús í Montagne de Reims, de la Marne og Coté des Blancs í Frakklandi! Louis Roederer erfði þetta kampavínshús frá föðurbróður sínum Mr. Dubois, árið 1833 og gaf því nafnið sitt sem við þekkjum svo vel í dag. Louis Roederer “fyrsti” er talinn einn áhrifamesti einstaklingurinn varðandi áhrif á þróun kampavíns og kampavínsverslunar.
Louis Roederer er “Virtasta kampavínshús í heimi” síðastliðin fimm ár, kosið af rúmlega 300 vínspekúlöntum, sommelierum og sérhæfðum vínsmökkurum Drinks International: Árin 2020, 2021, 2022, 2023 og einnig í ár!!
Ekkert kampavínshús hefur leikið þetta eftir.
Þetta heimsþekkta kampavínshús er eitt af fáum húsum sem eftir er í fjöldskyldueigu og sömu fjöldskyldu frá upphafi. Louis Roederer er stærsta sjálfstæða /fjöldskyldurekna vínhúsið í kampavínshéraði Frakklands (maisons de champagne). Það er leiðandi í kampavínshéraðinu á sviði lífrænnar rætunar.
Því er stjórnað af Frédéric Rouzaud sem er fulltrúi sjöundu kynslóðar Louis Roederer ættarinnar!
Kjallarameistari Louis Roederer er oft talinn besti og virtasti kjallarameistari heims, Jean-Baptiste Lecaillon.
Louis Roederer á 242 ha. lands og framleiðir tæplega 80% af sínum þrúgum sjálfir sem er langhæsta hlutfall í héraðinu hjá tiltölulega stóru og heimsþekktu kampavínshúsi. Þetta gerir þeim kleift að rækta sínar eigin Grand Cru þrúgur fyrir ÖLL vintage vínin sín og rúmlega það. Þeir eru því lítið háðir öðrum ræktendum eins og mörg þekktu kampavínshúsin eru. Þannig lagði Louis Roederer grunninn að sínum frábæru kampavínum því þeir geta stjórnað nákvæmlega öllum ferli ræktunarinnar.
Ein sérstaða þessa magnaða kampavínshúss er að um miðja 18. öld eignaðist Louis Roederer margar af bestu Grand Cru víngörðunum í Champagne héraði Frakklands. Þetta var óvenjulegt á þeim tíma þar sem nánast öll kampavínshúsin áttu ekki Grand Cru ekrur heldur keyptu Grand Cru vínber sín annars staðar frá.
Þetta var t.d. lykillinn að því Alexander II Rússlandskeisari bað Louis Roederer árið 1876 að búa til “besta kampavín í heimi” fyrir sig og sína hirð í konungshöllinni. Tsarinn var mikill áhugamaður um gott kampavín og sérstakur aðdáandi Louis Roederer. Þetta kampavín keisarans átti að endurspegla allt það besta í einu kampavíni. Algjört hámark gæða. Einnig heimtaði keisarinn að þetta yrði kristalsflaska eða gegnsæ svo hann gæti séð hvort eitri hefði verið bætt í. Einnig mátti alls ekki vera neitt „innskot“ í botni flöskunnar þar sem mögulega væri hægt að koma fyrir sprengiefni! Varfærni hans var mjög skiljanleg þar sem helmingur fyrri 12 keisara Rússlands voru myrtir, örlög sem áttu einnig eftir að verða örlög Alexanders þrátt fyrir varfærnina!
Vegna Grand Cru vínekrukaupanna gat Louis Roederer uppfyllt þessa ósk Alexander II og kampavínið Cristal varð til sem fyrsta “Prestige” kampavín heims! Næsti Rússlandskeisari, Nikolai II erfði sama smekk og faðir sinn og lét Cristal áfram vera kampavín Romanoffættarinnar, allt þar til að rússneska byltingin hélt innreið sína 1917, með þeim voðaatburðum sem þá urðu.
Louis Roederer er stærsta byodynamíska kampavínshús í heimi með 120 ha. af 240 ha. sem lífrænt ræktaðir / vottaðir vínakrar. Hinir 120 ha. eru lífrænt ræktaðir en óvottaðir. Louis Roederer neitar að nota nokkurn áburð fyrir utan líffræðilegan rotmassa og hættu að nota illgresiseyði árið 1998 . Öll vintage kampavín hússins eru 100% byodynamísk!
Frá stofnum Champagne Louis Roederer hefur húsið verið samheiti fyrir virtustu og bestu kampavínshús heims.
Louis Roederer var valið sérstaklega vegna konungsvígslu Elísabetu II Englandsdrottningu, 1953.
Louis Roederer er “virtasta kampavínshús í heimi 2020, 2021, 2022 2023 og 2024 ” að mati sérfræðinga Drinks International.
-
Brut Nature Philippe Starck Rosé Vintage 201512.900 kr.
-
Brut Collection 242 MAGNUM16.900 kr.
-
Brut Collection NV 244 / 375 ml4.480 kr.
-
Brut Collection 241, JEROBOAM 3L39.500 kr.
-
Carte Blanche demi-sec8.499 kr.
-
Cristal Rosé 201469.643 kr.
-
Cristal Brut Vintage MAGNUM, 201287.600 kr.
-
Cristal Brut Vintage 2014 og 201536.500 kr.
-
Brut Nature Philippe Starck Vintage 201511.900 kr.
-
Brut Vintage 2015 og 201610.800 kr.
-
Brut Rosé Vintage 2012 MAGNUM24.895 kr.
-
Brut Rosé Vintage 2016 og 201711.970 kr.
-
Brut Rosé Vintage 2015 / 375 ml5.840 kr.
-
Brut Premier, MAGNUM16.900 kr.
-
Brut Collection 243 (NV)8.998 kr.