Ramos Pinto

Ramos Pinto

Vínhúsið Ramos Pinto er eitt af upprunalegu brautriðjendum hágæðavíns í Douro héraði Portúgals. Þetta goðsagnakennda vínhús var stofnað í Vila Nova de Gaia í Portúgal árið 1880 af bræðrunum Adriano og Antonio Ramos Pinto. 

Vínhúsið er vel þekkt fyrir ævintýralega góð púrtvín en hvítvín og rauðvín þeirra eru einnig einhver þau bestu sem koma frá Portúgal.

Í gegnum árin hefur Ramos Pinto náð yfirburðaþekkingu á ræktun þrúgutegunda Douro svæðisins, þ.e. þeim þrúgum sem henta svæðinu best. Þannig hefur vínhúsinu tekist að rækta og framleiða bestu vínþrúgurnar í Douro héraði Portugals.

Ramos Pinto byrjaði snemma að innleiða róttæka gæðaframleiðslustefnu, allt frá vínviðunum til vínanna. Með því að kaupa fjórar Quintas eða lönd hátt upp í fjöllum m.a.í Upper Douro dal og Cõa dalnum og endurgróðursetja plöntur í ríkjandi granít og kalkríkum jarðvegi, tókst vínhúsinu að verða leiðandi í portúgölskum rauðvínum, hvítvínum og síðast en ekki síst, ótrúlegum púrtvínum. 

Ramos Pinto á fjögur bú í Douro dalnum: Quinta do Bom Retiro og Quinta da Urtiga, staðsett í Cima Corgo, auk Quinta dos Bons Ares og Quinta de Ervamoira, í Douro Superior. Þetta eru samtals um 360 hektarar af fyrsta flokks vínekrum.

Þar á meðal eru 187 hektarar af bestu víngörðum Alto Corgo og Douro Superior ökrunum í hinum fræga Douro fjalladal sem myndast af Douro ánni og þverám hennar.

Ramos Pinto framleiðir um 90% af sínum þrúgum sjálfir. Þetta er langhæsta framleiðsluhlutfall þrúga hjá einu vínhúsi í Douro dalnum og veitir Ramos Pinto algera stjórn á vínum sínum, frá ræktun á þrúgum til flösku.

Púrtvín Ramos Pinto hafa unnið til margvíslega alþjóðaverðlauna, td. gull–og platinum verðlaun frá „The Decanter wine world awards fyrir 20 og 30 ára púrtvínin. ( 98 stig af 100 mögulegum!)

Þetta heimsfræga vínhús er í meirihlutaeigu Louis Roederer frá árinu 1990.