Brut Rosé Vintage 2015

11.970 kr.

Stíllinn á þessu rosé kampavíni frá Louis Roedererer glæsilegur!  Mikil fylling,  frábært jafnvægi allan tímann og munúðarfullt eftirbragð með viðkvæma ávaxtasemi frá upphafi til enda.(rauðir ávextir). 

Brut Rose opnast í fyrsta sopa með þéttum og ferskum ávaxtakeim með stórri og glæsilegri fyllingu . Þessu fylgir síðan  fíngerður og fallegur keimur af seiddu rúgbrauði  sem gefur víninu afar  fallegan “eleganz” og dýpt.

Flókið bragðið í fyllingunni minnir á ferskar kryddjurtir, smá kanil og papriku. Stórt, voldugt  og langt eftirbragð.

Stíllinn  er stór og glæsilegur,  með mikinn karakter og stóran ávaxtakeim. 

Eitt allra besta  rósakampavín í heimi!

Vivino; 4.4 // Wine Spectator; 93 // The Wine Advocate; 94 stig // Wine Enthusiast; 95 stig

 

AffBlitzz ehf og vínbúðinni Heiðrúnu.

Á lager

Vörunúmer: B2 Vöruflokkur:

Lýsing

Þrúgur; 63% Pinot Noir, 37% Chardonnay.

Styrkur: 12.0%.

Gott og mikið rósakampavín verður að búa til úr mjög þroskuðum þrúgum sem getur verið erfitt að fá í hinu klassíska kampavínsloftslagi.  Þessvegna keypti Louis Roederer á sínum tíma eina elstu kampavínsekruna, Cumières, rétt hjá ánni Marne,  en þar næst fram svokallað “phenolic maturity” þannig að híðið af þrúgunum er notað áfram og látið gerjast lengi, þar til að rauður blær myndast. Með þessari aðferð nær Louis Roederer  fram frábærum eiginleika í Rose kampavínið sitt án þess að blanda í það rauðvíni eins og nánast öll önnur kampavínshús gera.

Þetta gefur Louis Roederer Rose alveg einstakan karakter!

Öll framleiðla Brut Rosé er sett á flöskur á búgarði Louis Roederer umvafinn hinum sögulegu víngörðum í eigu fjölskyldunnar.

Viðbótar upplýsingar

Framleiðandi

Tegund

Land

Hérað

,

Þrúgur

37% Chardonnay, 63% Pinot Noir

Magn

Passar vel með

Bleikur fiskur, Mildir og mjúkir ostar, Skelfiskur, Svínakjöt