Odette Estate

Odette Estate er ungt vínhús, stofnað árið 2011. Vínekrurnar eru 38 hektarar, staðsettar á einu besta vínræktunarsvæði  “Stags Leap District”  svæðinu í Napa Dalnum. Þessar vínekrur voru áður í eigu Dick Seltzner sem er einn aðalbrautriðjandi víngerðar í Napa.

Odette fékk LEEDS vottun árið 2017.( Leadership in Energy  and Environmental Design) 

Sem dæmi um umverfispælingar  hússins þá er öll vínrannsóknarstofa þeirra smíðuð úr endurunnum flutningagámum frá Kína, sú eina sinnar tegundar í Napa!

Odette er einnig vottað sem lífrænt vínhús, CCOF ( California Certified Organic Farmers)

Odette, eins og Cade og PlumpJack  fékk nafn sitt frá Shakespeare, en Odette er ein lykilpersóna hjá skáldinu mikla.

Vínhúsið sérhæfir sig í  glæsilegum “full body” Cabernet Saugvinon  vínum.

Kjallarameistari Odette er Jeff Owens sem er einn fárra meðlima í meistaraklúbbnum “100 point winemaker“, en hann fékk fullt hús, 100 stig fyrir fyrstu gler Odette Estate. 

Jeff Owens er fyrsti vínframleiðandinn í Napa dalnum til að fá fullt hús stiga fyrir upphafsútgáfu sína af Odette rauðvíni árið  2015 og Odette er fyrsta vínhúsið í Napa til að ná þessum árangri með skrúftappa.

Odette framleiðir einnig vín undir hliðarmerkinu Adaptation.

Odette vínhúsið er í eigu PlumpJack Estate.