Brut Collection 243 (NV)

8.998 kr.

Þrúgur; 42% Chardonnay, 36% Pinot Noir, 22% Pinot Meunier.

Styrkur: 12,0%.  Viðbættur sykur ( Doseage): 8 g/L

Collection 243 opnast með ilm af eplum og perum og  það er hraður stígandi í bragði og fyllingu. Það er bæði “lárétt” og “lóðrétt” kampavín í senn;  Mjúkt, bragðmikið og fyllir góm vel ( “lárétt”) en einnig er hraður stígandi í bragði og fyllingu. (“lóðrétt”)

Gott og nákvæmt jafnvægi. Áferðin er mjög fersk, ríkuleg og óaðfinnanlegur sítrus keimur rís upp. Í gómnum eru afgerandi bragð af grænum eplum, sítrónu, ferskju og steinefnum.
Ferskt og langt eftirbragð með kitlandi saltkeim í bláendann.

Var valið af Esquire.com eitt af 5 bestu non-vintage kampavínum fyrir 2023. Umsögn;  >>”Fruit-forward and as refreshing as they come, Louis Roederer’s Collection Brut Champagne is a dream to sip on. A wine worthy of a special occasion.”<<

Er sannarlega meðal bestu Brut non vintage vína í heimi og dómarnir endurspegla það!

Dómar; Wine Spectator; 92 stig // Vivino; 4.3 stig //  Wine and Spirits; 93 stig //  Decanter; 93 stig //  Wine Advocade; 93+ // JamesSuckling.com; 94 stig

 

AffBlitzz ehf

Á lager

Vörunúmer: A2 Vöruflokkur:

Lýsing

Brut Collection er nýtt kampavín frá Louis Roederer sem leysir af hólmi Brut Premier non-vintage  vínið vinsæla. Það heitir Collection 243 því þetta er uppskera nr. 243 frá stofnum Louis Roederer árið 1776.

Brut Collection 243 er búið til úr öllum þremur aðalvínþrúgunum;  Chardonnay,  Pinot noir og Pinot meunier. Brut Collection er þroskað í eikartunnum í 4 ár og síðan “hvílt” í 6 mánuði í viðbót.

Brut Collection  er svokallað “non vintage” vín jafnel þó  44% í blöndunni sé vintage og reserva kampavín.

56% vínsins er frá 2017 uppskerunni, 34% er vintage vín eða árgangsvín frá 2012-2016 og 10% er síðan svokölluð  reserva vín, eða varasjóður sem notað er sérstaklega í Cristal kampavínið fræga.

 

Viðbótar upplýsingar

Framleiðandi

Tegund

Land

Hérað

,

Þrúgur

22% Pinot Meunier, 36% Pinot Noir, 42% Chardonnay

Magn

Passar vel með

Bleikur fiskur, Mildir og mjúkir ostar, Skelfiskur, Svínakjöt