Brut Collection NV 244 / 375 ml

4.480 kr.

Collection 244 opnast með ilm af eplum og perum og er bæði “lárétt” og “lóðrétt” kampavín í senn. Mjúkt, bragðmikið og fyllir góm vel ( “lárétt”) en einnig er hraður stígandi í bragði og fyllingu. (“lóðrétt”)  Hárfínt  jafnvægi,  og yndislega ferskt.

Þetta kampavín er fullt og ríkulegt með fallegum sítrusangan.

Í gómnum eru afgerandi bragð af grænum eplum, sítrónu, ferskju og  steinefnum.

Ferskt og langt  eftirbragð með kitlandi saltkeim sem rís upp í bláendann.

Er sannarlega hið fullkomna “Non Vintage” kampavín og dómarnir endurspegla það!

Dómar; Wine Spectator; 92 stig // Vivino; 4.2 stig //  Wine and Spirits; 93 stig //  Decanter; 93 stig //  Wine Advocade; 93+ // JamesSuckling.com; 94 stig

 

AffBlitzz ehf
Vöruflokkur:

Lýsing

Þrúgur; 42% Chardonnay, 36% Pinot Noir, 22% Pinot Meunier.

Styrkur: 12,0%.  Viðbættur sykur ( Doseage): 8 g/L

Brut Collection er nýtt kampavín frá Louis Roederer sem leysir af hólmi hið frábæra Brut Premier non-vintage  kampavín. Það heitir Collection 244 því þetta er uppskera nr. 244 frá stofnum Louis Roederer árið 1776.

Brut Collection 244 er búið til úr öllum þremur aðalvínþrúgunum;  Chardonnay,  Pinot noir og Pinot meunier. Brut Collection er þroskað í eikartunnum í 4 ár og síðan “hvílt” í 6 mánuði í viðbót.

Þó Brut Collection sé svokallað “non – vintage” vín, þá væri réttara að kalla þetta frábærka kampavín  “multi-vintage” því hlutfall vintage og reserva vína í því er afar hátt eða  44% !

34% er vintage vín eða árgangsvín frá 2012-2016 og 10% er síðan svokölluð  reserva vín, eða varasjóður sem notað er sérstaklega í Cristal kampavínið fræga.

Loks er 56% vínsins er frá 2017 uppskerunni.

 

Viðbótar upplýsingar

Magn

Framleiðandi