Domaines Ott

Domaines Ott

Domaines Ott vínhúsið er almennt viðurkennt sem „Guðfaðir Provence rósavínsstílsins“.

Þetta fræga vínhús var kosið “Besta evrópska vínhúsið árið 2022” fyrir framúrskarandi vín. Þetta var í fyrsta sinn sem þessi verðlaun féllu í skaut vínhúss sem sérhæfir sig í rósavínum!

>>“ In awarding this prize to the winehouse Domaines Ott, the Wine Enthusiast jury wishes to recognise a fantastic rosé which has been instrumental in building the reputation of this flagship product from Provence among wine lovers around the world. „<<    

Domaines Ott á 229 hektara af vínekrum sem eru allar lífrænt vottaðar.

Húsið var stofnað af Marcel Ott árið 1896, en Marcel Ott er talinn vera frumkvöðullinn á bak við fyrstu alvöru rósavínin í Provence. Þetta þekkta rósavínhús er staðsett í hjarta Provence héraðsins við Miðjarðarhaf, nánast við sjávarsíðuna.

Rósavínin eru framleidd í þremur mismunandi búum: Château Romassan Bandol ( 83 hektarar) Clos Mireille ( 53 hektarar) og Château de Selle í  Côtes de Provence héraði ( 93 hektarar ) Hvert þessara svæða hefur sinn eigin sjarma og persónuleika, allt eftir jarðvegi og hæð þeirra yfir sjó. Til gamans má nefna að eftir endurnýjun jarðvegsins á Château Romassan ekrunum þá tók það rúmlega 30 ár þar til að kjallarameistari Domaines Ott taldi ekruna tilbúna til að búa til alvöru rósavín!

Domaines Ott er í eigu kampavínshússins Louis Roederer ( frá 2004) og býr til nokkur af bestu rósavínum Frakklands. Rósavínin By Ott og Chateau Romassan sem við bjóðum upp á og hið fræga Étoile rósavín sem er talið eitt besta rósavín í heimi!

Búin eru meðal þeirra þekktustu í Provence héraði m.t.t. gæða og lífrænnar jarðvegsvottunar.

Einnig framleiðir Domaines Ott glæsilegt hvítvín, hvítvínið Clos Mireille Blanc, ásamt rauðvíninu Château Romassan Bandol Rouge.

Í dag reka  frændurnir Christian og Jean-François Ott vínhúsið og tileinka líf sitt ást forföður síns á Domines Ott rósavínum.

Vínin okkar frá Domaines Ott