Brut Rosé Vintage 2018, 375 ml
5.840 kr.
Þrúgur: 63% Pinot Noir, 37% Chardonnay.
Styrkur: 12,0%
Dómar; Vivino; 4.4 // Wine Spectator; 93 // The Wine Advocate; 94 // Wine Enthusiast; 95 stig
Býódýnamískt // lífrænt kampavín
Stíllinn á þessu Rosé kampavínu er glæsilegur! Mikil fylling, frábært jafnvægi allan tímann og munúðarfullt eftirbragð með viðkvæma ávaxtasemi frá upphafi til enda.(rauðir ávextir).
Brut Rose opnast í fyrsta sopa með þéttum og ferskum ávaxtakeim með stórri og glæsilegri fyllingu . Þessu fylgir síðan fíngerður og fallegur keimur af seiddu rúgbrauði sem gefur víninu afar fallegan „eleganz“ og dýpt.
Flókið bragðið í fyllingunni minnir á ferskar kryddjurtir, smá kanil og papriku. Stórt, voldugt og langt eftirbragð.
Sannarlega eitt besta rósakampavín í heimi!
Á lager
Lýsing
Gott og mikið rósakampavín eins og Brut Rosé Vintage verður að búa til úr mjög þroskuðum þrúgum sem getur verið erfitt að fá í hinu klassíska kampavínsloftslagi. Þessvegna keypti Louis Roederer á sínum tíma eina elstu kampavínsekruna, Cumières, rétt hjá ánni Marne, en þar næst þessi svokallaði „phenolic maturity“, sem er sá þroski sem Louis Roederer sækist eftir í sitt yfirburða Brut Rosé kampavín.
Louis Roederer blandar ekki rauðvíni í sitt rósakampavín eins og langflest kampavínshús gera, heldur bruggar áfram hýðið af þrúgunum, þannig að einstakur bleikrauður blær og mikill karakter verður af Brut Rosé Vintage kampavíni þeirra.
Öll framleiðla Brut Rosé er sett á flöskur á búgarði Louis Roederer umvafin hinum sögulegu víngörðum í eigu fjölskyldunnar.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi | |
|---|---|
| Land | |
| Hérað | |
| Þrúgur | 37% Chardonnay, 63% Pinot Noir |
| Magn | |
| Tegund | |
| Passar vel með | Bleikur fiskur, Mildir og mjúkir ostar, Skelfiskur, Svínakjöt |




