Château Jean Voisin

Saga vínhússins franska Château Jean Voisin  hefst árið 1583 þegar Jean Voisin, borgarstjóri í Saint-Émilion reisti sér býli á frekar ókönnuðu en þokkalega varðveittu landi þar um slóðir. Hann gerði sér fljótlega ljóst að landið og jarðvegurinn hentaði vel til framleiðslu á vínþrúgum og Saint-Émilion vínið frá Jean Voisin tók að vaxa og þróast.

Chassagnoux fjölskyldan keypti sig síðan inn í Chateau Jean Voisin árið 1955 en framleiðsla á afburða rauðvíni var hugarfóstur og aðaláhugamál systkinanna Pierre Chassagnoux og Amedee Chassagnoux.

Í dag er Jean Voisin áfram fjölskyldurekið vínhús þar sem það er enn í eigu og stjórnað af fjölskyldumeðlimunum Xavier Chassagnoux og Laurence Chassagnoux.

Vínekrurnar liggja norðan við Saint Émilion hérað Frakklands, skammt frá Barbanne þverám og landamærunum við Montagne Saint Émilion. 15 hektarar eru gróðursettir í einni lóð umhverfis Château á hásléttu  Saint-Émilion. 

Víngarður Chateau Jean Voisin  er gróðursettur að mestu með  Merlot þrúgunni sem gefur víninu mikið og ávaxtaríkt bragð með mjúki tanninn. Einnig er um 10% Cabernet Franc þrúgan, sem færir víninu glæsileika og margbreytileika. Þó víngarðurinn sé lítill þá er hann vel staðsettur á hásléttu í norðurhluta St.Emilion. 

Forseti Frakklands Emmanuel Macron, er með Chateau Jean Voisin sem eitt af lykilrauðvínum sínum á vínseðli Élysée hallarinnar í París.