Nicolo Grippaldi

Nicolo Grippaldi

Nicolo Grippaldi er afar áhugavert vínhús í Enna á Sikiley. Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs í um 650 m. hæð.

Vínhúsið er 100% bíódýnamískt vottað bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.

Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015.  Eigandi þess, Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu  Castello dei Rampolla og ákvað að hætta að vinna við fjöldaframleidd vín og láta láta gamlan draum sinn rætast; Kaupa yfirgefna vínekru langafa síns  hans Salvatore Grippaldi,  í þorpinu Gagliano Castelferrato í Enna.

Nicolo tók græðlinga af 150+ ára gömlum vínvið langafa síns, hlúði að þeim og plantaði í ekruna. Þannig nær hann að búa til afburða rauðvín úr grunni gamals vínviðs. Mikil dýpt og flækjustig.

Vín Grippaldi eru karakterrík vín, “Terroir”, ( jarðbundin) hrein og glæsileg.

Þessi rauðvín eru á vínseðlum hjá mörgum Michelin stöðum á Ítalíu og Frakklandi, þ.á.m þessum  3 stjörnu Michelin veitingastöðum:

1: Ristorante Osteris Francescana.

2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.

3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi. Kosinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020.

Vinakrarnir eru ræktaðir með sikileysku þrúgunum Nera D ´Avola og Nerello Mascalese.