Brut Vintage 2016, 750 ml og Magnum 2015
Price range: 10.900 kr. through 23.900 kr.
Þrúgur: 68% Pinot Noir, 32% Cardonnay.
Styrkur: 12,0%
Dómar: Vivino; 4.3 // Decanter; 94 // Wine Spectator; 94 // Wine Enthusiast 95 // James Suckling 96
Einnig til í MAGNUM stærð.
Byodínamískt // lífrænt ræktað kampavín.
Brut Vintage er afskaplega fágað, ferskt og „einbeitt“ á bragðlaukana. Það er meitlað sem stórt og bragðmikið kampavín. Byrjar strax, og er svip- og fyrirferðamikið. Verður fljótt mjög þétt, ríkulegt, og fyllir vel í góm. Afskaplega endingargott. Bleikir ávextir og ber í fyrirrúmi.
Langt, bragðmikið og vel „búttað“ eftirbragð af þessu gullfallega og kraftmikla vintage kampavíni.
Hreint út sagt magnað vintage kampavín.
Lýsing
Brut Vintage kampavínið byggist að stórum hluta á krafti og strúktúr Pinot Nour þrúgunnar í Montagne de Reims héraðinu. Vegna staðhátta þar taka þrúgurnar töluvert lengri tíma til að þroskast og vegna þess þróa þær með sér sérstakt og öðruvísi Pinot Nour bragð sem þroskast guðdómlega.
Louis Roederer keypti 15 hektara í þessu héraði árið 1850 til að hafa fulla stjórn á þessari „vintage“ þrúgu.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi | |
|---|---|
| Tegund | |
| Land | |
| Hérað | |
| Þrúgur | 30% Chardonnay, 70% Pinot Noir |
| Magn | |
| Passar vel með | Bleikur fiskur, Mildir og mjúkir ostar, Skelfiskur, Svínakjöt |




