Guerrieri Della Terra 2022

6.490 kr.

Þrúgur: 95% Montepulciano, 5% Sangiovese

Styrkur: 15%

Dómar: Vivino 4.4 // Robert Parker 93  // Wine Searcher 4.5 // // Luca Maroni 99 stig ( best Italian wine 2022)

Guerriero Della Terra er flaggskip Guerrieri vínhússins í rauðvíni, mögulega besta Montepulciano rauðvín í boði hér heima.

Er iðulega valið eitt besta ítalska rauðvínið í sínum verðflokki  af Luca Maroni:  >“ Absolutely one of the best italian wines, near perfection!<

Þetta flaggskip er einungis framleitt í bestu uppskeruárum af elsta vínvið hússins sem er 35+ ára gamall.

Þetta er djúpt vín, “medium body”, mikið flækjustig en ekki þungt, frekar bjart.

Hér er mikill karakter:  Þéttir svartir ávextir ásamt berjakenndum keim með flókinni og þéttri áferð. Dásamlegur ilmur af brómberjum, aðalbláberjum,  bláberjaköku og dökkum plómum fléttaðar saman við súkkulaði og vanillukeim.

Ríkulegt vín og lagskipt með silkimjúkum tannin og mikilli lengd.

Gerjun er í ryðfríum stáltönkum í 6 mánuði, þroskun / öldrun  í 12 mánuði í frönskum eikartunnum.

Loks er vínið látið hvíla í flöskum í 12 mánuði í viðbót.

 

AffBlitzz ehf
Vörunúmer: GUdellaterra Vöruflokkur: Tag:

Lýsing

Guerrieri vínhúsið er  í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð.  Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar  í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.

Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.

Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.

Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100%  lífrænum aðferðum.