Dei Pinti, 2020

7.060 kr.

Þrúgur: 50% Nerello Mascalese,  50% Nero D´Avola

Styrkur; 14%

Dómar: Vivino, 4,2 stig // Wine Advocade 92 // James Suckling 93

100% Bíódínamískt vottað rauðvín.

DEI PINTI er með yndislegan ilm af svörtum kirsuberjum, vanillu, kanil, og kalkblautum steinum!

Hér er meðal – til mikil fylling og mikill karakter !

Þetta er vel þétt rauðvín með fínum „spennuþrungnum”  tannínum.

Fallega uppbyggt nokkuð flókið og margslungið vín, ilmandi í bragði með blóma- og  dökka ávaxta og steinefnaflækju.

Skógarbotn og villisveppir spretta fram.  Einnig keimur af þurrkuðum sítrus þegar líður á.  Mjúkt og algerlega beiskjulaust.

Mikil jörð og langt,  hárfínt eftirbragð í þessu karaktermikla Sikileyjarvíni.

AffBlitzz
Vörunúmer: NG Dei Pinti 20 Vöruflokkur:

Lýsing

Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá rótum Etnu á Sikiley.  Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs, 100% bíódýnamískt vottaðir bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.

Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015 og er því  nánast nýbyrjað starfsemi.  Eigandi þess, Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu  Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns  hans Salvatore,  í þorpinu Enna við rætur Etnu á Sikiley.

Vín Grippaldi eru karakterrík vín, “Terroir”, ( jarðbundin) hrein og glæsileg.

Þessi rauðvín eru þegar komin á vínseðil á þessum  3 stjörnu Michelin veitingastöðum:

1: Ristorante Osteris Francescana.

2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.

3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi.   Le Mirazur  var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!

Geri önnur nýbyrjuð vínhús betur!!

Vinakrarnir eru í rúmlega 600m hæð, ræktaðir með sikileysku þrúgunum Nera D ´Avola og Nerello Mascalese.