Le Domeniche Di Teo, 2020

6.090 kr.

Þrúgur: 76% Nerello Mascalese,  24% Nero D´Avola

Styrkur; 14%

Dómar: Vivino, 4.0 stig

100% Bíódínamískt vottað rauðvín.

Le Domeniche Di Teo er karakterríkt vín. Vatnsteins- og rósailmur í glasi.  Í bragði  má  finna  keim af möluðum kirsuberjum, timjan, rósmarín og ylfurberjum með örlitlum heysátukeim . Meðalfylling, mjúkt með mjög fínum þéttum tannínum.

Le Domeniche Di Teo byrjar í berjaávöxtum en verður smám saman steinefnalegri og flóknari og gæði vínsins skín hér í gegn.  Sterkur kjarni af rauðum ávöxtum malar góminn í góðri fyllingu.  Börkur af blóðappelsínu og  þurrkaðar kryddjurtir spretta fram í lokin..

Lagskipt og allflókið vín með nokkuð langt endabragð og mikinn karakter.

AffBlitzz
Vörunúmer: NG Di Teon 20 Vöruflokkur:

Lýsing

Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá rótum Etnu á Sikiley.  Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs, 100% bíódýnamískt vottaðir bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.

Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015 og er því  nánast nýbyrjað starfsemi.  Eigandi þess, Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu  Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns  hans Salvatore,  í þorpinu Enna við rætur Etnu á Sikiley.

Vín Grippaldi eru karakterrík vín, “Terroir”, ( jarðbundin) hrein og glæsileg.

Þessi rauðvín eru þegar komin á vínseðil á þessum  3 stjörnu Michelin veitingastöðum:

1: Ristorante Osteris Francescana.

2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.

3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi.   Le Mirazur  var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!

Geri önnur nýbyrjuð vínhús betur!!

Vinakrarnir eru í rúmlega 600m hæð, ræktaðir með sikileysku þrúgunum Nera D ´Avola og Nerello Mascalese.