Cade Cabernet Saugvinon Howell Mountain 2018
17.200 kr.
Þrúgur: Cabernet Sauvignon 87%, Merlot 5%, Petit Verdot 5%, Malbec 3%
Styrkur: 15.6%
Dómar; Vivino 4.6 // Wine Searcher 94 // Vinous 95 // Jeb Dunnuck 95 // Decanter 98 stig.
Það er gerjað í stáltönkum og síðan geymt ( öldrun ) í 18 mánuði í 85% nýjum frönskum eikartunnum.
Cade Estate Howell Mountain 2018 er „full bodied“, þurrt og íburðarmikið rauðvín frá m.a. einni bestu og frægustu vínekru Napa Valley; Howell Mountain,“13th vineyard“.
Þetta stóra vín sprettur fram með mikinn ilm af dökkrauðum ávöxtum, rósarblöðum, gömlum skógarbotni, villijurtum, kryddi og vel þroskuðum aðalbláberjum.
í bragði er spennandi blanda af eik, espresso baunum, þroskuðum kirsiberjum og dökkt súkkulaði flæðir yfir góminn í glæsilegum tónum! Vínið er sannarlega með mikla fyllingu og stórt með íburðarmikilli flauelsmjúkri áferð, ásamt þéttum silkimjúkum tannin eins og best gerist frá Napa Valley vínhéraðinu.
Langt endabragð með háu flækjustigi.
Þetta stóra vín er sannarlega hlaðið persónuleika Cabernet Saugvinon eins og dómarnir endurspegla.
Lýsing
Cade Estate var stofnað árið 2005 og er í eigu PlumpJack Estate Wineries.
Það er fyrsta vínhúsið í Napa Valley til að fá svokallaða LEED Gold Certificated vottun.
Vínhúsið er einnig lífrænt vottað CCOF ( California certified organic farmers)
Land þeirra nær yfir 24 hektara svæði og eru í 550 metra hæð yfir sjávarmáli, vel fyrir ofan þokulínu þessa svæðis.
Af þessum 24 hekturum eru einungis 9 hektarar notaðir til að framleiða Cade rauðvín. Hinir 15 hektararnir voru settir í svokallaðan landsjóð þannig að þar verður alltaf opið rými!
Einnig á Cade Estate 33 hektara vínekru á Howell Mountain, ein besta vínekra í Napa Valley.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




