Salvatore Grippaldi, 2020

8.440 kr.

Þrúgur: 100 % Nero D´Avola

Styrkur; 14%

Dómar: Vivino 4.3 stig // Wine Advocade 92  // James Suckling 95

100% Bíódínamískt vottað rauðvín.

Salvatore Grippaldi er flaggskip Grippaldi vínhússins. Mikill karakter og mikið “Terrior” (jarðbundið)  rauðvín. Grippaldi er nefnt eftir langafa kjallarameistarans og maður finnur strax  að mikill metnaður hefur farið í þetta flaggskip.  Þetta vín kemur frá bröttum hlíðum Etnu á Sikiley í  650 m. hæð.

Grippaldi er tiltölulega stórt (medium –full body) með verulega mikið flækjustig og rausnarlega áferð.  Hér sprettur fram yndislegur ilmur af bökuðum jarðarberjum, möluðum kirsuberjum og svörtu tei með vott af þurrkuðum sveppum.  Mikil fylling og karakter um miðbikið af  dökkum berjum, skógarbotni, heysátu og villisveppum.

Áferðin er flauelsmjúk og stór, með fínum tannínum og frábærri lengd sem situr vel og lengi.  Þetta er glæsilegt rauðvín með mikinn persónuleika sem endurspeglar vel sikileyskan jarðveg („terroir“)  við rætur Etnu.

AffBlitzz
Vörunúmer: NG Salvatore 20 Vöruflokkur:

Lýsing

Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá rótum Etnu á Sikiley.  Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs, 100% bíódýnamískt vottaðir bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.

Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015 og er því  nánast nýbyrjað starfsemi.  Eigandi þess, Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu  Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns  hans Salvatore,  í þorpinu Enna við rætur Etnu á Sikiley.

Vín Grippaldi eru karakterrík vín, “Terroir”, ( jarðbundin) hrein og glæsileg.

Þessi rauðvín eru þegar komin á vínseðil á þessum  3 stjörnu Michelin veitingastöðum:

1: Ristorante Osteris Francescana.

2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.

3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi.   Le Mirazur  var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!

Geri önnur nýbyrjuð vínhús betur!!

Vinakrarnir eru í rúmlega 600m hæð, ræktaðir með sikileysku þrúgunum Nera D ´Avola og Nerello Mascalese.

 

Viðbótar upplýsingar

Framleiðandi