Clos Mireille White 2023
5.990 kr.
Þrúgur; 74% Sémillon, 26% Rolle.
Styrkur: 13.5%
Dómar; Vivino; 4.1 stig // The Wine Advocate; 92 stig // Decanter 93 stig // Vinous 4.4 stig
Býódýnamískt / lífrænt vottað.
Þetta fallega hvítvín hefur verið notað í pörun á veitingastaðnum Moss í Bláa Lóninu.
Fallegur gulur og afskaplega mjúkur blær er á Clos Mireille hvítvíninu. Vínið byrjar lúmskt en „rís upp“ í góm og verður ferskt og ríkulegt!
Ríkjandi Sémillon þrúgan í þessu flotta hvítvíni gefur Clos Mireille mjög áberandi ferskleika með fínlegum saltkeim. Þessi saltfínleiki er einkennandi fyrir Clos Mireille hvítvínið þar sem vínekran liggur nánast við sjávarsíðu Provence héraðs.
Bjartir sítrónutónar koma fram þegar líður á og maður upplifir „sjávarúðann“ neðst í Provence héraðinu sem leiðir inn í fallegt, mineralískt og þétt endabragð.
Á lager
Lýsing
Domaines Ott vínhúsið er oft nefnt „Guðfaðir rósavíns“ í Provenz héraði Frakklands. En það var hvítvínið þeirra, Clos Mireille sem upphaflega færði Domaines Ott frægð sína.
Mireille er afar gamalt landsvæði við Frönsku Riveríuna, leirkenndur jarðvegur og án kalksteins. Nálægð víngarðanna við hafið skýrir eiginleika hvítvínsins en ekrurnar sem notaðar eru fyrir Clos Mireille hvítvínið ná nánast niður að sjó. Sjóloftslagið og sjávarúðinn skapa þannig kjöraðstæður fyrir framleiðslu á þessu afar skemmtilega hvítvíni.
Allar ekrur vínhússins eru lífrænt vottaðar.
Viðbótar upplýsingar
| Tegund | |
|---|---|
| Hérað | Champagne |
| Þrúgur | 60% Grenache, 28% Cinsault, 8% Syrah, 4% Mourvèdre |
| Magn | |
| Passar vel með | Bleikur fiskur, Mildir og mjúkir ostar, Skelfiskur, Svínakjöt |
| Framleiðandi |




