Chateau Romassan Rosé 375 ml

2.990 kr.

Hér er í boði 375 ml glaska af þessu glæsilega rósavíni!

Það er mikið og margslungið bragð af þessu frábæra rósavíni sem finnst ekki í ódýrari rósavínum.  Vínið er afar ljúffengt með ilm og bragð af granateplum, ferskjum, melónukeim og steinefnum. Vínviðurinn  vex allur í dæmigerðum „Bandol terroirs“: þurrum jarðvegi, ríkur af kalk-og sandsteini og einstaklega þurru og sólríku veðri. Þessi atriði tryggja að Mourvèdre, helsta þrúgan í þessari blöndu, ( 60%)  fær að sýna styrk sinn svo um munar og býr til farveg fyrir flókna uppbyggingu og mjög  margslungna fyllingu bragðsins ásamt einstakri  öldrunargetu vínsins. Þetta yndislega rósavín er því  knúið áfram af Mourvèdre þrúgunni,  fyllingu Grenache þrúgunnar bætt við og lokahnykkurinn er silkimýkt Cinsault þrúgunnar.

Afar heillandi eðalrósavín.

“Chateau Romassan er besta rósavín í hillum Á.T.V.R”!  er umsögn Þorra Hringssonar vínsmakkara.

Chateau Romassan  fékk gullverðlaun fyrir besta rósavínið hjá „ The Global Rose Masters“ árið 2020.

Dómar:  Vivino; 4.2 stig // The Wine Advocate; 93 stig // Vinous Media; 93 stig // Wine and Spirits , 2021 ; 96 stig

AffBlitzz ehf

Á lager

Vörunúmer: D3A Vöruflokkur:

Lýsing

Þrúgur; 60% Mourvèdre, 20% Cinsault, 20% Grenache.
Styrkur: 13,5%

Domaines Ott vínhúsið fræga  var stofnað árið 1896 og er staðsett á besta stað  frönsku rivíerunni.

Domaines Ott var valið  “Besta evrópska vínhús ársins 2022”  fyrir framúrskarandi vín að mati gagnrýnenda Wine Enthusiast!  Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt rósavínsframleiðanda.

Vínhúsið hefur sérhæft sig í eðalrósavínum í rúm 100 ár og er almennt viðurkennt sem “Guðfaðir Provence rósavínsins” eins og við þekkjum það í dag.

Ekrur  vínhússins eru allar lífrænt vottaðar.

Þetta glæsilega vínhús er í eigu og umsjón Louis Roederer og framleiðir nokkur bestu rósavín vín heims. Þessi vín eru framleidd á þremur mismunandi búum: Château Romassan (Bandol), Clos Mireille og Château de Selle (báðir Côtes de Provence)

Samtals eru þetta 148 hektarar.

Viðbótar upplýsingar

Framleiðandi