Guerrieri Bianco Marche
4.450 kr.
Þrúgur: 100% Bianchello e Verdicchio
Styrkur: 13.5%
Dómar; Vivino 4.2 / / Luca Maroni 95 stig.
Bronsverðlaun á International Wine Challenge 2024.
Guerrieri Bianco er litli bróðir Del Mare hvítvínsins sem var valið besta ítalska hvítvínið í sínum verðflokki 2024 og 2025.
Þetta er nokkuð stórt og mjúkt hvítvín, bragðmikið og all búttað. Það er gulllitað í glasi með ilm af gulum ferskjum, peru, kryddjurtum og mjúkum sítrus.
Þurrt hvítvín, kraftmikið og flauelsmjúk áferð.
Bianco Marche gefur dýrum hvítvínum sannarlega lítið eftir.
Nokkuð langt, ávaxtaríkt eftirbragð.
Lýsing
Guerrieri vínhúsið er í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð. Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.
Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.
Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.
Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100% lífrænum aðferðum.




