Lýsing
Gott og mikið rósakampavín eins og Brut Rosé Vintage þarf að búa til úr mjög þroskuðum þrúgum sem getur verið erfitt að fá í hinu klassíska kampavínsloftslagi. Þessvegna keypti Louis Roederer á sínum tíma eina elstu kampavínsekruna, Cumières, rétt hjá ánni Marne, en þar næst þessi svokallaði „phenolic maturity“, sem er sá þroski sem Louis Roederer sækist eftir í sitt yfirburða Brut Rosé kampavín.
Louis Roederer blandar ekki rauðvíni í sitt rósakampavín eins og flest önnur kampavínshús gera, heldur bruggar áfram hýðið af þrúgunum, þannig að einstakur bleikrauður blær, mikið flækjustig og karakter einkennir Brut Rosé Vintage kampavínið.
Öll framleiðla Brut Rosé er sett á flöskur á búgarði Louis Roederer umvafin hinum sögulegu víngörðum í eigu fjölskyldunnar.




