Lýsing
Brut Collection er nýtt kampavín frá Louis Roederer sem leysir af hólmi Brut Premier non-vintage vínið vinsæla. Það heitir Collection 241 því þetta er uppskera nr. 241 frá stofnum Louis Roederer árið 1776. Hér er það í Jeroboam útfærslu, eða þriggja lítra flösku.
Brut Collection 241 er búið til úr öllum þremur aðalvínþrúgunum; Chardonnay, Pinot noir og Pinot meunier. Brut Collection er þroskað í eikartunnum í 4 ár og síðan “hvílt” í 6 mánuði í viðbót.
Þó Brut Collection sé svokallað non – vintage vín, þá er hlutfall vintage og reserva vína í því afar hátt eða 44% !
34% er vintage vín eða árgangsvín frá 2012-2016 og 10% er síðan svokölluð reserva vín, eða varasjóður sem notað er sérstaklega í Cristal kampavínið fræga.
Loks er 56% vínsins er frá 2017 uppskerunni.