Étoile
15.567 kr.
Þrúgur; 78% Grenache, 22% Mourvèdre.
Styrkur; 13,5%.
Dómar; Vivino 4.4 stig // The Wina Advocate; 94 // James Suckling 94 // Vinous Media 95
Býódýnamískt / lífrænt vottað.
Mögulega besta rósavín sem til er hérlendis!
Þetta glæsilega rósavín hefur kristaltært yfirbragð með bleikum perlu-koparlit. Að stærstum hluta er það gert úr Grenache þrúgunni en er einnig með Mourvèdre þrúguna innanborðs. Mjög svipmikið framúrskarandi rósavín í heimsklassa.
. Grípandi ilmurinn úr glasinu bendir til greipaldins og vanillu. Vínið opnast síðan með yndislegri sítrónu og steinefna sprengingu ásamt ferskleika af sítrus og framandi ilm af ávöxtum, m.a. rauðum hindberjum og kirsuberjum.
Vínið er alveg silkimjúkt og bragðmikið í góm, verður síðan fyllra, stærra og kringlóttara með keim af mangó og ástríðuávöxtum. Ferskleiki Étoile heldur síðan út í ferðalag í langvarandi og sólríkt endabragð „miðjarðarhafsloftslags“……….. !
„Besta rósavínið á Íslandi – PUNKTUR ! “ ( Vínsíðan / Eiríkur Orri )
Lýsing
Domaines Ott vínhúsið fræga var stofnað árið 1896 og er staðsett á besta stað frönsku rivíerunni.
Domaines Ott var valið „Besta evrópska vínhús ársins 2022“ fyrir framúrskarandi vín að mati gagnrýnenda Wine Enthusiast! Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt rósavínsframleiðanda.
Vínhúsið hefur sérhæft sig í eðalrósavínum í rúm 100 ár og er almennt viðurkennt sem “Guðfaðir Provence rósavínsins” eins og við þekkjum það í dag.
Ekrur vínhússins eru allar lífrænt vottaðar.
Hið glæsilega Étoile er flaggskip Domaines Ott. Étoile tekur það besta frá öllum þremur búum vínhússins Domaines Ott; Château de Selle, Clos Mireille í Côtes de Provence og Château Romassan í Bandol.
Étoile er hæsta stig Domaines Ott vínakranna og eitt besta rósavín í heimi. Stórkostlegt rósavín frá Provence héraði Frakklands!
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




