Chateau Romassan Rosé, MAGNUM
12.500 kr.
Þrúgur; 60% Mourvèdre, 20% Cinsault, 20% Grenache.
Styrkur: 13,5%
Dómar: Vivino; 4.2 stig // The Wine Advocate; 93 stig // Vinous Media; 93 stig// Wine and Spirits , 2021 ; 96 stig
Býódýnamískt / lífrænt vottað.
Það er mikið og margslungið bragð af þessu frábæra rósavíni sem finnst ekki í ódýrari rósavínum.
Vínið er afar ljúffengt með ilm og bragð af granateplum, ferskjum, melónukeim og steinefnum. Vínviðurinn vex allur í dæmigerðum „Bandol terroirs“: þurrum jarðvegi, ríkur af kalk-og sandsteini og einstaklega þurru og sólríku veðri. Þessi atriði tryggja að Mourvèdre, helsta þrúgan í þessari blöndu, ( 60%) fær að sýna styrk sinn svo um munar og býr til farveg fyrir flókna uppbyggingu og mjög margslungna fyllingu bragðsins ásamt einstakri öldrunargetu vínsins. Þetta yndislega rósavín er því knúið áfram af Mourvèdre þrúgunni, fyllingu Grenache þrúgunnar bætt við og lokahnykkurinn er silkimýkt Cinsault þrúgunnar.
Afar heillandi rósavín og svo er það áferðin sem leggur lokapunktinn á löngu eftirbragði í þessu eðalrósavíni.
“Chateau Romassan er besta rósavín í hillum Á.T.V.R”! er umsögn Þorra Hringssonar vínsmakkara 2023.
Chateau Romassan fékk gullverðlaun fyrir besta rósavínið hjá „ The Global Rose Masters“ árið 2020.
Á lager
Lýsing
Domaines Ott vínhúsið fræga var stofnað árið 1896 og er staðsett á besta stað frönsku rivíerunni.
Domaines Ott var valið „Besta evrópska vínhús ársins 2022“ fyrir framúrskarandi vín að mati gagnrýnenda Wine Enthusiast! Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt rósavínsframleiðanda.
Vínhúsið hefur sérhæft sig í eðalrósavínum í rúm 100 ár og er almennt viðurkennt sem “Guðfaðir Provence rósavínsins” eins og við þekkjum það í dag.
Ekrur vínhússins eru allar lífrænt vottaðar.
Þetta glæsilega vínhús er í eigu og umsjón Louis Roederer og framleiðir nokkur bestu rósavín vín heims. Þessi vín eru framleidd á þremur mismunandi búum: Château Romassan (Bandol), Clos Mireille og Château de Selle (báðir Côtes de Provence) Samtals 148 hektarar.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




