Sancerre Chavignol Rosé
4.200 kr.
Þrúgur: 100% Pinot Noir
Styrkur: 13%
Dómar: Wine Enthusiast 90 stig // Vivino: 90 stig // Vinous: 90 stig // 8 wines: 92 stig
Býódýnamískt / lífrænt vottað.
Þetta er skemmtilega „bjart“ rósavín frá Sancerre héraði Frakklands, þurrt en töluvert kraftmikið. Glæsilegur ljósur laxalitur í glasi. Afgerandi rauðberjatónar eins og jarðaber og rauð hindber.
Kringlótt í munni með mjög góða fyllingu. Ferskt og líflegt með afgerandi áferð um miðbik.
Ávaxtamikið og fallegt Sancerre rósavín með góðu jafnvægi alla leið í endabragð með fallegu eftirbragði af sítrusávöxtum.
Á lager
Lýsing
Domaine Delaporte er um 300 ára gamalt vínhús staðsett á vinstri bakka Louire árinnar í hjarta Chavignol, beint á móti Poully-Fumé. Vínhúsið er fjölskyldufyrirtæki, í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi, eða frá 17. öld.
Vínhúsið er skilgreint sem eitt af „First rate Sancerre producers“ skv. vínbókinni The Wine Bible ( bls.186)
Vín Domaine Delaporte eru öll gerð úr eigin þrúgum ræktaðar á vínekrum búsins. Vínhúsið kaupir því engar þrúgur annarsstaðar frá sem gefur húsinu fullt vald á framleiðslu sinni.
Þetta gefur Domaine Delaporte fullt vald yfir gæðum og „strúktúr“ vínsins.
Domaine Delaporte er vottað vínhús til að nota skilgreininguna „A.O.C. Sancerre“ við vínræktun sína. Einungis 14 þorp í Chavignol hafa slíka vottun.
Domaine Delaporte er lífrænt vottað vínhús frá árinu 2010. Enginn tilbúinn áburður, skordýtaeitur eða annað slíkt er notað.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




