Domaines Ott

Domaines Ott vínhúsið er almennt viðurkennt sem „Guðfaðir Provence rósavínsstílsins“.
Þetta fræga vínhús var kosið “Besta evrópska vínhúsið árið 2022” fyrir framúrskarandi vín. Þetta var í fyrsta sinn sem þessi verðlaun féllu í skaut vínhúss sem sérhæfir sig í rósavínum!
>>“ In awarding this prize to the winehouse Domaines Ott, the Wine Enthusiast jury wishes to recognise a fantastic rosé which has been instrumental in building the reputation of this flagship product from Provence among wine lovers around the world. „<<
Domaines Ott á 229 hektara af vínekrum sem eru allar lífrænt vottaðar.
Húsið var stofnað af Marcel Ott árið 1896, en Marcel Ott er talinn vera frumkvöðullinn á bak við fyrstu alvöru rósavínin í Provence. Þetta þekkta rósavínhús er staðsett í hjarta Provence héraðsins við Miðjarðarhaf, nánast við sjávarsíðuna.
Rósavínin eru framleidd í þremur mismunandi búum: Château Romassan Bandol ( 83 hektarar) Clos Mireille ( 53 hektarar) og Château de Selle í Côtes de Provence héraði ( 93 hektarar ) Hvert þessara svæða hefur sinn eigin sjarma og persónuleika, allt eftir jarðvegi og hæð þeirra yfir sjó. Til gamans má nefna að eftir endurnýjun jarðvegsins á Château Romassan ekrunum þá tók það rúmlega 30 ár þar til að kjallarameistari Domaines Ott taldi ekruna tilbúna til að búa til alvöru rósavín!
Domaines Ott er í eigu kampavínshússins Louis Roederer ( frá 2004) og býr til nokkur af bestu rósavínum Frakklands. Rósavínin By Ott og Chateau Romassan sem við bjóðum upp á og hið fræga Étoile rósavín sem er talið eitt besta rósavín í heimi!
Búin eru meðal þeirra þekktustu í Provence héraði m.t.t. gæða og lífrænnar jarðvegsvottunar.
Einnig framleiðir Domaines Ott glæsilegt hvítvín, hvítvínið Clos Mireille Blanc, ásamt rauðvíninu Château Romassan Bandol Rouge.
Í dag reka frændurnir Christian og Jean-François Ott vínhúsið og tileinka líf sitt ást forföður síns á Domines Ott rósavínum.
Vínin okkar frá Domaines Ott
-
Chateau Romassan Rosé 375 ml
3.200 kr. -
BY.OTT Rosé 2024
3.980 kr. -
Chateau Romassan Rosé 2024
5.490 kr. -
Clos Mireille White 2023
5.990 kr. -
Chateau Romassan Rouge 2020
7.980 kr. -
Chateau Romassan Rosé, MAGNUM
12.500 kr. -
Étoile
15.567 kr.







