Cristal Rosé 2014
69.643 kr.
Þrúgur; 55% Pinot Noir, 45% Chardonnay ( 20% þroskað í eikartunnum)
Styrkur: 12,5%
Dómar: Vivino; 4.6 // Wine Spectator; 97 // The Wine Advocate; 99 stig
Aldur vínviðsins sem þrúgurnar eru handplokkaðar af er að lágmarki 30 ára og allt upp í 60 ára. Þetta gefur Cristal Rosé mikla dýpt.
Cristal Rosé er einfaldlega efst í „kampavínsfæðukeðjunni“, ákaft, flauelskennt og afar hrífandi í bragði. Líkt og fullæfð hljómsveit sem blandar saman mörgum hljóðfærum í eitt sannfærandi lag, býður þetta bjarta Rosé upp á hárnákvæmt jafnvægi sem fá, ef nokkur kampavín ná.
Það er til lítils að lýsa mismunandi tónum Cristal Rosé, auðveldara er einfaldlega að vitna í bókina „Champagne: The essential guide to the wines, producers and winhouses“ eftir Peter Liem. (gefin út í október, 2017)
Þar er fullyrt á bls 267: „This is the finest rosé in Champagne“.
Cristal er fyrsta „prestige / Cuvée“ kampavínið í heimi, eða frá 1876, og það mest verðlaunaða.
Lýsing
Árið 1974, næstum 200 árum eftir stofnun kampavínshúss Louis Roederer ákvað kjallarameistari þeirra Jean-Baptiste Lécallion að búa til Cristal Rosé cuvée. Til að ná fullu valdi á slíku kampavíni notaði kjallarameistarinn Pinot Noir þrúgur af elsta vínviði sínum úr fínustu grand cru víngörðum Louis Roederer.
Kalksteins berggrunnurinn, kalkheldinn leirinn í jarðveginum og sérvalinn gamall vínviður gerir þrúgunum kleift í bestu árum að ná framúrskarandi ávaxtaþroska, sem er einmitt það sem Cristal kampavínin ganga út á.
Engin malolactic gerjun. Skammturinn er 7 g/L.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




