Spinasanta, 2020
8.900 kr.
Þrúgur: 100 % Nerello Mascalese
Styrkur; 14.5%
Dómar: Vivino, 4.2 // Wine Advocade 93+ // James Suckling 94 stig.
100% Bíódínamískt vottað rauðvín.
Rauðvín frá Nicolo Grippaldi eru á vínseðlum hjá mörgum Michelin stöðum á Ítalíu og Frakklandi.
Enn eitt karakterríkt rauðvín! Ilmur af kraftmiklum skógarbotni, rauðum kirsuberjum, furu, og vel þroskuðum jarðarberjum. „Full body“ rauðvín. Bragð – og kraftmikið!
Tannín eru þétt, fínkorna og fyllt. Örlítill keimur af gamalli heysátu og sinu þegar líður á, ásamt töluverðri fyllingu. Svartir og fallega þroskaðir rauðir ávextir taka síðan við út í endabragð og örlítill öskukeimur læðir sér inn um miðbikið, enda eru vínakrar Grippaldi nálægt eldfjallinu Etnu!
Spinatansa 2020 er vel flókið og fínstillt í bragði.
Lýsing
Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá rótum Etnu á Sikiley. Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs, 100% bíódýnamískt vottaðir bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.
Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015. Eigandi þess, Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns hans Salvatore, í þorpinu Enna í 650 metra hæð á hálendi Sikileyjar. Hann fann nokkur tré / vínvið frá dögum langafa síns, tók græðlinga af þeim sem hann hlúði að og plantaði í ekru langafa síns. Þannig fær hann því þrúgur sem eiga uppruna sinn frá 150+ ára gömlum vínvið og gefur víninu töluvert meiri fyllingu en frá ungum vínvið.
Vín Grippaldi eru karakterrík vín, „Terroir“, ( jarðbundin) metnaðarfull og glæsileg.
Rauðvín frá Nicolo Grippaldi eru á vínseðlum margra Michelin staða, þ.á.m. þessum 3 stjörnu Michelin veitingastöðum:
1: Ristorante Osteris Francescana.
2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.
3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi. Le Mirazur var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!
Vinakrarnir eru í rúmlega 600m hæð, ræktaðir með sikileysku þrúgunum Nera D ´Avola og Nerello Mascalese.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




