Cade Cabernet Saugvinon 2019
13.500 kr.
Þrúgur; Cabernet Sauvignon 84%, Petit Verdot, 16%
Styrkur 15,6%
Dómar: Vivino, 4.5 stig
Þetta stóra Napa Valley rauðvín hefur glæsilegan ilm af brómberjum, þroskuðum kirsuberjum, hvítum pipar og rósarblöðum. Krafmikið í nefi, fallega sætt og mjúkt tannin og stór fylling í munni.
Þegar líður á birtist dökkt súkkulaði , kakókeimur og smá kanill. Langt og sérlega flott eftirbragð.
Skemmtilega hátt hlutfall Petit Verdot þrúgunnar ( 16%) styrkir uppbyggingu þessa glæsilega víns og ljáir því stærð.
Tiltölulega hátt alkóholinnihald gefur víninu síðan stóran og kraftmikinn karakter!
Vínið fékk 18 mánaða öldrun í Frönskum eikartunnum, þar af er helmingur nýjar tunnur.
Lýsing
Cade Estate var stofnað árið 2005 og er í eigu PlumpJack Estate Wineries.
Cade Estate er fyrsta vínhúsið í Napa Valley til að fá svokallaða LEED Gold Certificated vottun, árið 2010.
Vínhúsið er einnig lífrænt vottað CCOF ( California certified organic farmers)
Land þeirra nær yfir 24 hektara svæði og eru í 550 metra hæð yfir sjávarmáli, vel fyrir ofan þokulínu þessa svæðis.
Af þessum 24 hekturum eru einungis 9 hektarar notaðir fyrir vínvið til að framleiða Cade Estate Cabernet Saugvinon. Hinir 15 hektararnir voru settir í svokallaðan landsjóð þannig að þar verður alltaf opið rými!
Einnig á Cade Estate 33 hektara vínekru á Howell Mountain, svokölluð „13th vineyard“. Þetta er frægasta / besta vínekran í Napa Valley.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




