Sancerre „Les Monts Damnés“ 2023

6.490 kr.

Þrúgur:  100% Sauvignon Blanc.

Styrkur: 13.5%

Dómar: Vivino 4.2 // Decanter 92 // 8 Wines 94 //Wine Enthusiast 94 stig.

Lífrænt vottað hvítvín (biodynamic)

 Sancerre Les Monts Damnés er kraftmikið,djúpt og ríkt Sancerre hvítvín með vel þroskað yfirbragð.

Þetta vín kemur frá einni bestu vínekru Chauvignol í Sancerre héraðinu, “Les Monts Damnés”.

Vínið er köftugt og flókið í nefi.

Það er ávaxtaknúið með vel þroskuðum perum og ferskjum. Hvít blóm í forgrunni ásamt balsamiktónum og steinefnum.

Vínið er kringlótt þ.e. góð munnfylling. Vel þétt, nokkuð flókið og mjúkt hvítvín.

Mjög ferskt með löngu, nokkuð djúpu og búttuðu eftirbragði.

Les Monts Damnés (“hið bölvaða fjall”) er hrjóstrug og brött hæð  sem var gróðursett af Benedictt munkum í klaustrinu Saint – Satur.

Nafnið endurspeglar hve erfitt er fyrir víngerðarmenn að rækta þrúgur í þessarri bröttu ekru.

Þetta er hágæða Sancerre hvítvín sem endurspeglar þá fágun sem Saugvinon Blanc þrúgan getur náð, ef ekran er góð og vínhúsið metnaðarfullt.

 

AffBlitzz ehf
Vörunúmer: SansilexMD Vöruflokkur: Tag:

Lýsing

Domaine Delaporte vínhúsið er fjölskyldufyrirtæki í eigu sömu fjölskyldu allt frá 17. öld.  Vínhúsið er staðsett  á besta stað í norðausturhluta Louire dalnum, í hjarta Chavignol. Domaine Delaporte á 30 vínekrur á besta stað í Sancerre héraðinu og er eitt fyrsta lénið í Sancerre – Chavignol héraði Frakklands.

Vínhúsið er skilgreint sem eitt af  fimm „First rate Sancerre producers“  skv. vínbókinni The Wine Bible ( bls.186)

Vínhúsið bruggar einungis úr þeim Sauvignon Blanc og Pinot Noir þrúgum sem það ræktar á eigin ekrum. Kaupir ekki annars staðar frá.

Uppskeran sem notuð er í Sancerre Silec hvítvínið kemur frá einni ekru með 40+ ára  vínvið.  Þetta gefur víninu meiri dýpt og fyllingu.

Domaine Delaporte er vottað sem „A.O.C.Sancerre“ vínhús fyrir vínrækt sína. Einungis 14 þorp í Chavignol héraðinu eru með slíka vottun.

Domaine Delaporte er lífrænt vottað vínhús. ( biodynamic ) Öll uppskeran er unnin með handafli og enginn tilbúinn áburður eða skordýtaeitur er notaður.