Château Jean Voisin

Saga vínhússins franska Château Jean Voisin  hefst árið 1583 þegar Jean Voisin, borgarstjóri í Saint-Émilion reisti sér býli á frekar ókönnuðu en þokkalega varðveittu landi þar. Hann gerði sér ljóst að landið og jarðvegurinn hentaði afar vel til framleiðslu á vínþrúgum og Saint-Émilion vínið frá Jean Voisin tók að vaxa og þróast.

Chateau Jean Voisin er staðsett á hásléttunni norður af sjálfu St. Emilion-þorpinu í nágrenni við ekki ómerkari vínhús en Petrus og Cheval Blanc . 15 hektarar eru gróðursettir í einni lóð á hásléttu  Saint-Émilion

Víngarður Chateau Jean Voisin  er gróðursettur að mestu með  Merlot þrúgunni sem gefur víninu mikið og ávaxtaríkt bragð með mjúki tanninn. Einnig ræktar húsið Cabernet Franc þrúguna, sem færir víninu glæsileika og margbreytileika. Þó víngarðurinn sé lítill þá er hann afar vel staðsettur.

Chassagnoux fjölskyldan keypti sig inn í Chateau Jean Voisin árið 1955 en framleiðsla á afburða rauðvíni var hugarfóstur og aðaláhugamál systkinanna Pierre Chassagnoux og Amedee Chassagnoux.

Í dag er Jean Voisin áfram fjölskyldurekið vínhús þar sem það er enn í eigu og stjórnað af fjölskyldumeðlimunum Xavier Chassagnoux og Laurence Chassagnoux.

Rauðvín frá Chateau Jean Voisin er á vínseðli Élysée forsetahallarinnar í Frakklandi og einnig notað þar í opinberum móttökum.

Chateau Jean Voisin vín okkar