Brut Collection 245, JEROBOAM 3L
39.900 kr.
Þrúgur; 42% Chardonnay, 36% Pinot Noir, 22% Pinot Meunier.
Styrkur: 12,0%. Viðbættur sykur ( Doseage): 8 g/L
Dómar; Vivino; 4.3 // Wine and Spirits; 93 // Decanter; 93 // Wine Advocade; 93+ // JamesSuckling.com; 94 stig
Collection kampavínið er hér í Jeroboam ( 3L) flösku.
Collection opnast með ilm af eplum og perum og er stundum lýst sem bæði „lárétt“ og „lóðrétt“ kampavín í senn. Mjúkt, bragðmikið og fyllir góm vel ( „lárétt“) en einnig er hraður stígandi í bragði og fyllingu. („lóðrétt“)
Gott og nákvæmt jafnvægi. Áferðin er mjög fersk, ríkuleg og óaðfinnanlegur sítrus keimur rís upp. Í gómnum eru afgerandi bragð af grænum eplum, sítrónu, ferskju og steinefnum.
Ferskt og langt eftirbragð með kitlandi saltkeim í bláendann.
Er sannarlega eitt besta Multi- Vintage kampavín í heimi og dómarnir endurspegla það !
Lýsing
Brut Collection er nýtt kampavín frá Louis Roederer sem leysir af hólmi Brut Premier non-vintage vínið vinsæla. Það heitir Collection 245 því þetta er uppskera nr. 245 frá stofnum Louis Roederer árið 1776. Hér er það í Jeroboam útfærslu, eða þriggja lítra flösku.
Brut Collection 245 er búið til úr öllum þremur aðalvínþrúgunum; Chardonnay, Pinot noir og Pinot meunier. Brut Collection er þroskað í eikartunnum í 4 ár og síðan „hvílt“ í 6 mánuði í viðbót.
Þó Brut Collection sé svokallað non – vintage vín, þá er hlutfall vintage og reserva vína í því afar hátt eða 44% !
34% er vintage vín eða árgangsvín frá 2012-2016 og 10% er síðan svokölluð reserva vín, eða varasjóður sem notað er sérstaklega í Cristal kampavínið fræga.
Loks er 56% vínsins er frá 2018 uppskerunni.
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|





