Lýsing
Þrúgur; 40% Pinot Noir, 40% Chardonnay, 20% Pinot Meunier.
Styrkur: 12,0%
Carte Blanche notar allar þrjár kampavínsþrúgutegundirnar: Pinot Noir, Chardonnay og Pinot Meunier. 5% vínanna eru þroskuð í eikartunnum með vikulegri hræringu í seti vínsins (batonnagé) og 10% af varavínunum í kjallara Louis Roederer eru notuð til að setja punktinn yfir Carte Blance kampavínið! Vínberin koma frá meira en 40 mismunandi “lóðum” og eru samansafn af sex ára uppskeru, en hluti þeirra kemur frá eigin varavíni Louis Roederer sem er látið þroskast í eikartunnum í mörg ár. Carte Blance kampavínið þroskast síðan í þrjú ár í kjallara Louis Roederer og hvílir síðan í sex mánuði eftir að hafa náð fullum þroska.
Skammturinn er 38 g/L, sem gerir Carte Blanche að kampavíni “demi-sec”.
Dómar; Wine Enthusiast; 90 stig // Vinous Media; 91 stig // Vivino; 93 stig