Bianchello Del Metauro

2.890 kr.

Þrúgur:  100% Bianchello

Styrkur: 12,5%

Dómar: Vivino 4.0 / Wine Enthusiast 90 stig.

International Wine Challenga: Bronsverðlaun 2022 og 2023 í sínum verðflokki.

Hér eru í nefi hvít blóm, sítrusávextir, stökk epli og steinefnakeimur.

Það er ferskt og mjúkt með afskaplega gott jafnvægi miðað við verðflokk.

Mjúkir sítrustónar.

Þetta er þurrt hvítvín, áferðin er létt en með bragðmikla tóna um miðbik og í enda.

AffBlitzz ehf
Vöruflokkar: , Tag:

Lýsing

Guerrieri vínhúsið er  í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð.  Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar  í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.

Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.

Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.

Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100%  lífrænum aðferðum.