Colli Pesaresi Sangiovese

2.890 kr.

Þrúgur; 90% Sangiovese, 10% Montepulciano

Styrkur; 13.0%

Dómar: Vivino 3.9 / Wine Searcher 90 / Wine Enthusiast 90 stig.

Colli Pesaresi Sangiovese er tiltölulega ungt rauðvín. Skært, rúbínrautt í glasi.

Flott ítakskt borðvín.

Vínið angar af þroskuðum kirsuberjum, hindberjum, miðjarðarhafsjurtum og léttum blómakeim.

Það er nokkuð  ferskt í bragði með bjartan og ávaxtríkan stíl. Vínið er meðalfyllt með góðu jafnvægi og mjúkum fíngerðum tanninum.

Vínviðurinn er 8 til 15 ára gömul tré og víngerjun /öldrun fer fram í stáltönkum.

AffBlitzz ehf
Vörunúmer: GUCollirv Vöruflokkar: , Tag:

Lýsing

Guerrieri vínhúsið er  í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð.  Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar  í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.

Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.

Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.

Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100%  lífrænum aðferðum.