2nd Chateau De Pez, 2023

4.790 kr.

Þrúgur: 64% Merlot,  31% Cabernet Saugvinon, 5% Petid Verdot

Styrkur: 13.5%

Dómar: Vivino 4.0 //  Decanter 92 // Wine Enthusiast 94

Frábært verð fyrir  tiltölulega flókið og vel ballanserað Bordeaux vín!

2nd Pez 2023 er bruggað úr þrúgum frá aðeins yngri vínvið en “venjulegur” Pez . Vínviðurinn fyrir 2nd Pez eru þó um 20 ára gamall og er því þegar komin með þroska og dýpt.

Vínið er rúbínrautt í glasi  og kemur verulega á óvart varðandi dýpt og glæsileika fyrir 2nd vín.

Meðalfyllling og flókið vín með aldeilis gott jafnvægi.

Þroskaðir svartir ávextir eins og plómur eru hér áberandi, einnig jarðaber og kirsuber.

Bragðið er langt og kraftmikið með mjúkum og vel þroskuðum tanninum.

 

 

 

AffBlitzz ehf
Vörunúmer: Pez2nd 23 Vöruflokkur: Tag:

Lýsing

Chateau De Pez er eitt elsta lénið í Saint Estéphe vínhéraðinu.

Vínhúsið er meðal virtustu vínhúsa Médoc héraðsins og var flokkað sem Cru Bourgeois Exceptionnel árið 2003.

Chateau De Pez er á „Star wine list of the year“  Bordeaux, France 2025.

Kjallarameistari Chateau de Pez er Nicholas Glumineau, sá sami og í einu frægasta Bordeaoux vínhúsi heims, Chateau Pichon Comtesse De Lalande.