Guerrieri Della Terra

6.490 kr.

Þrúgur: 95% Montepulciano, 5% Sangiovese

Styrkur: 15%

Dómar: Vivino 4.4 // Robert Parker 93  // Wine Searcher 4.5 // // Luca Maroni 99 stig ( best Italian wine 2022)

Guerriero Della Terra er flaggskip Guerrieri vínhússins í rauðvíni. Djúpt, bjart og kraftmikið vín og eitt besta Montepulciano rauðvín í boði hér heima.

Var valið eitt besta ítalska rauðvínið í sínum verðflokki af Luca Maroni ( 99 stig)  >” Absolutely one of the best italian wines of the year!<

Þetta er stórt vín “medium body” en ekki þungt, frekar bjart.

Einungis framleitt í bestu árum af elsta vínvið hússins sem er 35+ ára gamall.

Hér er mikill karakter:  Þéttir svartir ávextir ásamt berjakenndum keim með flókinni og þéttri áferð. Dásamlegur ilmur af brómberjum, bláberjaköku og dökkum plómum fléttaðar saman við súkkulaði og vanillukeim.

Ríkulegt vín og lagskipt með silkimjúkum tannin og frábærri lengd.

Gerjun er í ryðfríum stáltönkum í 6 mánuði, þroskun / öldrun  í 12 mánuði í frönskum eikartunnum.

Loks er vínið látið hvíla í flöskum í 12 mánuði í viðbót.

 

AffBlitzz ehf
SKU: GUdellaterra Category: Tag:

Description

Guerrieri vínhúsið er  í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð.  Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar  í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.

Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.

Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.

Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100%  lífrænum aðferðum.