Nicolo Grippaldi

Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá Enna í Sikiley.  Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs í um 650 m. hæð.

Vínhúsið er 100% bíódýnamískt vottað bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.

Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015.  Eigandi þess, Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu  Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns  hans Salvatore Grippaldi,  í þorpinu Gagliano Castelferrato í Enna.

Nicolo tók græðlinga af 150+ ára gömlum vínvið langafa síns, hlúði að þeim og plantaði í ekruna. Þannig nær hann að búa til afburða rauðvín úr grunni gamals vínviðs. Mikil dýpt og flækjustig.

Vín Grippaldi eru karakterrík vín, “Terroir”, ( jarðbundin) hrein og glæsileg.

Þessi rauðvín eru á vínseðli á mörgum Michelin stöðum á Ítalíu og Frakklandi, þ.á.m þessum  3 stjörnu Michelin veitingastöðum:

1: Ristorante Osteris Francescana.

2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.

3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi.   Le Mirazur  var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!

Vinakrarnir eru ræktaðir með sikileysku þrúgunum Nera D ´Avola og Nerello Mascalese.