Salvatore Grippaldi, 2020

10.900 kr.

Þrúgur: 100 % Nero D´Avola

Styrkur; 14%

Dómar: Vivino 4.3 stig // Wine Advocade 92  // James Suckling 95

100% Bíódínamískt vottað rauðvín.

Rauðvín frá Nicolo Grippaldi eru á vínseðlum á mörgum Michelin stöðum á Ítalíu og Frakklandi.

Þetta rauðvín er flaggskip Grippaldi vínhússins, skýrt í höfuðið á langafa Nicolo Grippaldi. Það er mikill karakter og mikið „Terrior“ (jarðbundið)  í þessu rauðvíni. Það finnst strax  að mikill metnaður hefur farið í þetta flaggskip. Jafnvægið er óaðfinnanlegt.

Grippaldi er tiltölulega stórt (medium –full body) með verulega mikið flækjustig og rausnarlega áferð.  Hér sprettur fram yndislegur ilmur af bökuðum jarðarberjum, möluðum kirsuberjum og svörtu tei með vott af þurrkuðum sveppum.  Mikil fylling og karakter um miðbikið af  dökkum berjum, skógarbotni, heysátu og villisveppum.

Áferðin er flauelsmjúk og stór, með fínum tannínum og frábærri lengd sem situr vel og lengi.  Þetta er glæsilegt rauðvín með mikinn persónuleika sem endurspeglar vel sikileyskan jarðveg („terroir“)

Salvatori Grippaldi kemur frá bröttum hálendishlíðum Sikileyjar, í  650 m. hæð.

AffBlitzz
Vörunúmer: NG Salvatore 20 Vöruflokkur:

Lýsing

Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá rótum Etnu á Sikiley.  Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs, 100% bíódýnamískt vottað, bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.

Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015. Eigandi þess Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu  Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns  hans Salvatore, í þorpinu Enna í 650 metra hæð á hálendi  Sikileyjar.  Hann fann nokkur tré / vínvið frá dögum langafa síns, tók græðlinga af þeim sem hann hlúði að og plantaði í ekru langafa síns.  Þannig  fær hann því þrúgur sem eiga uppruna sinn frá 150+ ára gömlum vínvið og gefur víninu töluvert meiri fyllingu en frá ungum vínvið.

Vín Grippaldi eru karakterrík vín, „Terroir“, ( jarðbundin) metnaðarfull og glæsileg.

Rauðvín frá Nicolo Grippaldi eru á vínseðlum margra Michelin staða, þ.á.m. þessum  3 stjörnu Michelin veitingastöðum:

1: Ristorante Osteris Francescana.

2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.

3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi.   Le Mirazur  var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!

 

 

Viðbótar upplýsingar

Framleiðandi