Marie Antoniette Corbieres

3.790 kr.

Þrúgur;  60% Syrah,  40% Grenache

Styrkur: 14%

Dómar: Vivino 4.0 stig

Býódýnamískt / lífrænt vín

Hér er einkennandi blanda fyrir Languedoc-Roussillon héraðið í Suður Frakklandi, Syrah og Grenache þrúgurnar.

Hér eru í glasi rúbínrauður litur og flókin flóra af brómberjum og garrigue-jurtum. Marie Antoinette Corbieres er frekar bold / fullt með mjúkum tannínum og afar fínu jafnvægi.
Þetta er frekar „bold“ rauðvín með keim afdökkum plómum, svörtum ólívum og muldum fjólum.

Glæsilegur Miðjarðarhafs-kryddkenndur karakter með keim af rósmarín og timjan.
Fallegt og mjúkt eftirbragð með steinefnum og dökkum súkkulaðikeim.

Vínið er látið þroskast í nýjum eikartunnum sem gefur víninu flækjustig og dýpt.

Þetta er skemmtilega óhefðbundið og vel „ballanserað“ rauðvín á hreint  frábæru verði.

 

AffBlitzz
Vörunúmer: AM MarieAntoinette Vöruflokkur:

Lýsing

Aubert & Mathieu er nútímalegt vínhús frá Languedoc – Roussillon héraðinu í Suður Frakklandi við ræturPýreneafjalla. Þar eru margar af bestu vínekrum Suður Frakklands staðsettar.

Nálgun vínhússins er frá aðeins nýju og nútímalegu sjónarhorni. Öll vín þeirra eru býódýnamískt / lífrænt  vottuð og húsið notar nýstárlegar og umhverfisvænar aðferðir.
Sem dæmi þá eru flöskurnar úr endurunnu gleri, kassarnir úr endurunnum pappa og öll vín þeirra er ekki með álfilmu við korktappann.

Einnig eru merkingarnar á flöskunum skemmtilega öðruvísi.

Vínekrurnar þeirra eru hátt yfir sjávarmáli til að fá dýpt í karakterinn.

>>“Tired of our respective professional lives, we left everything to pursue a slightly crazy dream: To
create wines with, a little unconventional and offbeat style with respect to our environment“<<  Anthony
Aubert & Jean-Charles Mathieu