Les Monts Damnés 2023
6.490 kr.
Þrúgur: 100% Sauvignon Blanc.
Styrkur: 13.5%
Dómar: Vivino 4.2 // Decanter 92 // 8 Wines 94 //Wine Enthusiast 94 stig.
Lífrænt vottað hvítvín (biodynamic)
Sancerre Les Monts Damnés er kraftmikið,djúpt og ríkt Sancerre hvítvín með vel þroskað yfirbragð.
Þetta vín kemur frá einni bestu vínekru Chauvignol í Sancerre héraðinu, “Les Monts Damnés”.
Það er köftugt og flókið í nefi.
Ávextir og hvít blóm með vel þroskuðum perum og ferskjum ásamt balsamiktónum og steinefnum.
Vínið er kringlótt þ.e. góð munnfylling. Vel þétt og mjúkt.
Mjög ferskt með löngu, nokkuð flóknu og búttuðu eftirbragði.
Þetta er hágæða hvítvín sem endurspeglar þá fágun sem Saugvinon Blanc þrúgan getur náð, ef ekran er góð og vínhúsið metnaðarfullt.
Les Monts Damnés (“hið bölvaða fjall”) er hrjóstrug og brött hæð sem var gróðursett af Benedictt munkum í klaustrinu Saint – Satur.
Nafnið endurspeglar hve erfitt er fyrir víngerðarmenn að rækta vínvið í þessarri bröttu ekru.




