Dei Pinti, 2020

8.900 kr.

Þrúgur: 50% Nerello Mascalese,  50% Nero D´Avola

Styrkur; 14%

Dómar: Vivino, 4,2 stig // Wine Advocade 92 // James Suckling 94

100% Bíódínamískt vottað rauðvín.

Rauðvín frá Nicolo Grippaldi eru á vínseðli á mörgum Michelin stöðum á Ítalíu og Frakklandi.

DEI PINTI er með yndislegan ilm af svörtum kirsuberjum, vanillu, kanil, og kalkblautum steinum!

Hér er meðal – til mikil fylling og mikill karakter !

Þetta er vel þétt rauðvín með fínum „spennuþrungnum”  tannínum.

Fallega uppbyggt nokkuð flókið og margslungið vín, ilmandi í bragði með blóma- og  dökka ávaxta og steinefnaflækju.

Skógarbotn og villisveppir spretta fram.  Einnig keimur af þurrkuðum sítrus þegar líður á.  Mjúkt og algerlega beiskjulaust.

Mikil jörð og langt,  hárfínt eftirbragð í þessu karaktermikla Sikileyjarvíni.

AffBlitzz
Vörunúmer: NG Dei Pinti 20 Vöruflokkur:

Lýsing

Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá rótum Etnu á Sikiley.  Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs, 100% bíódýnamískt vottaðir bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.

Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015 og er því  nánast nýbyrjað starfsemi.  Eigandi þess, Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu  Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns  hans Salvatore, í þorpinu Enna í 650 metra hæð á hálendi  Sikileyjar.  Hann fann nokkur tré / vínvið frá dögum langafa síns, tók græðlinga af þeim sem hann hlúði að og plantaði í ekru langafa síns.  Þannig  fær hann því þrúgur sem eiga uppruna sinn frá 150+ ára gömlum vínvið og gefur víninu töluvert meiri fyllingu en frá ungum vínvið.

Vín Grippaldi eru karakterrík vín, „Terroir“, ( jarðbundin) metnaðarfull og glæsileg.

Rauðvín frá Nicolo Grippaldi eru á vínseðlum margra Michelin staða, þ.á.m. þessum  3 stjörnu Michelin veitingastöðum:

1: Ristorante Osteris Francescana.

2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.

3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi.   Le Mirazur  var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!

Vinakrarnir eru í rúmlega 600m hæð, ræktaðir með sikileysku þrúgunum Nera D ´Avola og Nerello Mascalese.