Ramos Pinto Adriano Reserva, Tawny
5.990 kr.
Þrúgur: Tuoriga Franca, Tinta Roriz og Tinta Cao
Styrkur: 19.5%
Adriano Reserva er non-vintage púrtvín frá púrtvínssnillingunum hjá Ramos Pinto. Dökkrautt.
Þetta er blanda af 6 til 7 ára gömlum vínum, látin þroskast í eikartunnum og er með afskaplega gott jafnvægi milli ferskleika (ungt) og flækjustigs (gamalt) enda er vínið akkúrat þar á milli í aldri.
Strax í munni finnur maður brómber, hindber, sveskju og fallegan leðurkeim. Þessi púrtari er ekki flókinn í bragði eða þungur, heldur frekar léttur og þægilegur með fallegt bragð sem endar með vott af dökku súkkulaði.
Dómar; Vivino, 4.0 stig
Lýsing
Adriano Reserva non vintage portvínið er tileinkað stofnanda Ramos Pinto, bræðrunum Adriano og Antonio Ramos Pinto sem stofnuðu vínhúsið árið 1880. Þetta skemmtilega portvín kom Ramos Pinto á kortið í vínheiminum á sínum tíma og gerði vínhúsið nánast einráða með portvín í Brasilíu og stórum hluta Suður Ameríku.
Þetta portvín sló þar svo rækilega í gegn að þau voru einfaldlega kölluð „Adriano“ en ekki portvín í þessum heimshluta!
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




