Guerrieri ALE
2.490 kr.
Þrúgur: Sangiovese og Lacrima
Styrkur: 6%
Dómar: Vivino 4.2 stig.
Hér er nýtt, óvenjulegt og afskaplega forvitnilegt vín fyrir þá sem vilja ekki fullt alkóhólinnihald; Létt freyðandi rauðvín á háum „kaliber“ með lágt áfengismagn frá Marche héraði Ítalíu: Áfengisstyrkur er 6%.
Þetta freyðandi rauðvín er „Semi dry“, létt og mjög frískandi.
Þó það sé hugsað sem vandað desert vín, þá smellpassar ALE með pastaréttum, kjötbollum og kjúkling!
Það er gert úr bestu Sangiovese og Lacrima þrúgunum frá GUERRIERI vínhúsinu og er þeirra vinsælasta freyðivín.
ALE er rúbínrautt í glasi; Ilmur af fjólum og rósum. Bragðmikið með svört kirsuber, sólber og villt jarðaber í forgrunni.
Þetta er afskaplega ferskt, óvenjulegt og hressandi rautt freyðivín sem hefur komið mörgu vínfólki á óvart.
Lýsing
Guerrieri vínhúsið er í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð. Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.
Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.
Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.
Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100% lífrænum aðferðum.




