Colli Pesaresi Sangiovese
2.890 kr.
Þrúgur: 90% Sangiovese, 10% Montepulciano
Styrkur: 13%
Dómar: Vivino 4.0 / Wine Enthusiast 90 / Luca Maroni 93 stig.
International Wine Challenge: Bronsverðlaun 2023 og 2024 í sínum verðflokki.
Aldur vínviðs: 7 til 15 ára.
Rúbínrautt rauðvín með ilm af ferskum kirsuberjum, hindberjum og miðjarðarhafskryddum.
Þurrt, „Medium body“ og ferskt.
Mjög gott jafnvægi og mjúkt fyrir tiltölulega ódýrt rauðvín. Mjúk tannín. Eikartónn.
Wine Enthusiast segir þetta rauðvín vera eitt það besta sem völ er á meðal vína frá Coli Pesaresi.
Lýsing
Guerrieri vínhúsið er í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð. Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.
Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.
Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.
Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100% lífrænum aðferðum.




