Brut Rosé Vintage 2017

12.800 kr.

Þrúgur: 60% Pinot Nour,  40% Chardonnay.

Styrkur: 12,0%

Dómar;  Vivino; 4.3 // Wine Spectator; 93 // The Wine Advocate; 94 stig // Wine Enthusiast; 95 stig

Býódýnamískt // lífrænt kampavín

Louis Roederer  Rosé 2017 kampavínið  er marglaga og flókið rósakampavín. Mikil fylling og flækjustig,  frábært jafnvægi allan tímann og munúðarfullt eftirbragð með viðkvæma ávaxtasemi frá upphafi til enda.(rauðir ávextir).

Brut Rose opnast í fyrsta sopa með þéttum og ferskum ávaxtakeim og stórri og glæsilegri fyllingu. Þessu fylgir strax fíngerður og fallegur keimur af villtum jarðaberjum, mandarínum,seiddu rúgbrauði, þurrkuðum blómum og kalkkenndum jarðvegstónum sem gefur víninu afar  fallegan „eleganz“ og dýpt.

Flókið, marglaga og  voldugt  með langt eftirbragð.

Sannarlega eitt besta rósakampavín í heimi!

AffBlitzz ehf
Vöruflokkur: Tag:

Lýsing

Gott og mikið rósakampavín eins og Brut Rosé Vintage þarf að búa til úr mjög þroskuðum þrúgum sem getur verið erfitt að fá í hinu klassíska kampavínsloftslagi.  Þessvegna keypti Louis Roederer á sínum tíma eina elstu kampavínsekruna, Cumières, rétt hjá ánni Marne,  en þar næst þessi svokallaði „phenolic maturity“, sem er sá þroski sem Louis Roederer sækist eftir í sitt yfirburða Brut Rosé  kampavín.

Louis Roederer blandar ekki rauðvíni í sitt rósakampavín eins og flest önnur kampavínshús gera, heldur bruggar áfram hýðið af þrúgunum,  þannig að einstakur bleikrauður blær, mikið flækjustig  og  karakter einkennir Brut Rosé Vintage kampavínið.

Öll framleiðla Brut Rosé er sett á flöskur á búgarði Louis Roederer umvafin hinum sögulegu víngörðum í eigu fjölskyldunnar.