Kate Saugvinon Blanc

3.790 kr.

Þrúgur: 100% Saugvinon Blanc

Styrkur: 12.5%

Dómar: Vivino 4.0 // Wine Enthusiast 91stig

Lífrænt vottað vín ( Biodynamic)

Kate er þurrt hvítvín frá Languedoc héraði Suður Frakklands.

Þetta vín endurspeglar fallega eiginleika Saugvinon Blanc þrúgunnar  en með frönskum glæsileika sem er einkennandi fyrir Aubert & Matheu vínhúsið.

Á gómnum er þetta Saugvinon Blanc hvítvín afskaplega ferskt og stökkt með ferskri sýru sem passar vel við ávaxtakeiminn í þessu fallega hvítvíni.

Lemonbörkur, hvít blóm, hunangsmelóna, þurrkað mango, ástaraldin og  gulir ávextir.

“Sólríkur ávaxtagarður”.

Fíngerður Steinefnaundirtónn læðist fram í lokin sem bætir við góða dýpt endabragðsins.

 

 

AffBlitzz ehf
SKU: AMkate blanc Category:

Description

Antony Aubert og Jean-Charles Mathieu eru nýjir víngerðarmenn í rótgróna vínheiminum og standa á bak við nokkur af mest spennandi og snilldarvel gerðum lífrænt ræktuðum vínum Langeudoc héraðsins í Suður Frakklandi.

Ein af betri vínekrum þessa svæðis er í bakgarði þeirra, ekran Minervois La Liviniére

Nálgun vínhússins er frá aðeins nýju og nútímalegu sjónarhorni. Öll vín þeirra eru býódýnamískt / lífrænt  vottuð og húsið notar nýstárlegar og umhverfisvænar aðferðir.
Sem dæmi þá eru flöskurnar úr endurunnu gleri, kassarnir úr endurunnum pappa og öll vín þeirra er ekki með álfilmu við korktappann.

Einnig eru merkingarnar á flöskunum skemmtilega öðruvísi.

Vínekrurnar þeirra eru hátt yfir sjávarmáli til að fá dýpt í karakterinn.

>>“Tired of our respective professional lives, we left everything to pursue a slightly crazy dream: To
create wines with, a little unconventional and offbeat style with respect to our environment“<<  Anthony
Aubert & Jean-Charles Mathieu