Guerrieri Nero

3.990 kr.

Þrúgur: 40% Montepulciano, 40% Sangiovese, 20% Cabernet Sauvignon

Styrkur: 14%

Dómar: Vivino, 4.2 // Luca Maroni 95

Nero er “litli bróðir” Della Terra rauðvínsins sem var valið eitt besta ítalska rauðvínið í sínum verðflokki af Luca Maroni, 2022 og 2023.

Nero er kröftugt, rúbínrautt og nokkuð kraftmikið vín. Þéttir svartir ávextir, nokkuð flókið rauðvín með ilm af vanillu, kakó, fjólum og gömlum skógarbotni.

Þetta er afskaplega heillandi vín með bragð af dökkum hindberjum, bláberjum og aðalbláberjum. Langt og þétt eftirbragð.

Þeir sem hrífast af Napa Valley eða hágæða Amarone vínum og finnst slík vín dýr elska þetta vín, enda frábært verð fyrir þennan gæðaflokk.

Aldur vínviðsins er 20 til 30 ára.

Öldrun er í 10 mánuði í frönskum eikartunnum.

Nero  fékk bronsverðlaun 2020 frá International Wine Challenge og gullverðlaun 2021.

Bronsverðlaun hjá Decanter, 2025.

 

AffBlitzz ehf
Vörunúmer: GUNmarche Vöruflokkur: Tag:

Lýsing

Guerrieri vínhúsið er  í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð.  Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar  í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.

Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.

Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.

Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100%  lífrænum aðferðum.