Guerrieri Bianco Marche

3.990 kr.

Þrúgur:  90% Bianchello Del Metauro, 10% Verdicchio

Styrkur: 13.5%

Dómar: Vivino 4.1 //  Wine Enthusiast 91 // Luca Maroni 95 stig

Decanter 2025: Silfurverðlaun

2025 Vinitali: 5 stjörnur

Guerrieri Bianco  er nokkuð stórt og mjúkt hvítvín, bragðmikið og búttað.

Það er gulllitað í glasi með ilm af gulum ferskjum, peru, kryddjurtum og balsamik.

Hér eru steinávextir ( ferskjur, kiwi ,nektarínur, aprikósur) hvít blóm, búttaður tertubotn og mjúkur sítrus.

Töluverður glæsileiki og vínið stækkar í glasi.

Langt og mjúkt eftirbragð með hnetukenndu flækjustigi, vott af hunangi og ávaxtaferskleika.

Frábært verð fyrir stórt og “elegant” hvítvín.

Aldur vínviðs er 20 til 30 ára.

Öldrun er í 14 mánuði

 

AffBlitzz ehf
Vörunúmer: GUBmarche Vöruflokkur: Tag:

Lýsing

Guerrieri vínhúsið er  í vínræktarhéraðinu La Marche í Austur Ítalíu og er 48 hektarar að stærð.  Húsið er í rúmlega 200 metra hæð í hlíðum Pesaro á austurbakka Metauro árinnar  í 10 km. fjarlægð frá Adríahafi.

Þetta er gamalgróið fjöldskyldufyrirtæki sem var stofnað árið 1800 og hefur því framleitt vín í rúm 200 ár.

Guerrieri fjölskyldan hefur rekið búgarðinn í sex kynslóðir með sterka áherslu á lífrænar aðferðir ( biodynamic) og notkun staðbundinna þrúguafbrigða í La Marche héraðinu.

Vínhúsið ræktar sjálft allar sínar þrúgur með 100%  lífrænum aðferðum.