Aubert & Mathieu

Antony Aubert og Jean-Charles Mathieu eru nýjir víngerðarmenn í rótgróna vínheiminum og standa á bak við nokkur af mest spennandi og vel gerðum lífrænt ræktuðum vínum Langeudoc héraðsins í Suður Frakklandi.

Ein af betri vínekrum þessa svæðis er í bakgarði þeirra, ekran Minervois La Liviniére.

Þeir skilgreina sig sem framleiðendur fyrir „High – End“ borðvín. ( Vivino 4.0 til 4.2 stig)

Aubert og Mathieu eru gamlir menntaskólavinir sem fóru í framhaldsnám í viðskiptafræði eins og gengur og gerist. Ástríðan lá þó ekki ekki framlegð og viðskiptafræði heldur í sameiginlegum áhuga á góðum vínum og öðruvísi nálgun í víngerð varðandi lífræna ræktun.

Þeir stofnuðu því vínhús saman árið 2019 í Languedoc – Roussillon héraði Suður Frakklands við rætur Pýrenenufjalla.

Vínekrurnar eru hátt yfir sjávarmáli til að fá dýpt í karakter vínanna.

Áherslan hjá Aubert & Mathieu er á nútímalegan vínstíl og víngerð ásamt umbúðarvali; Flest vín þeirra eru býódýnamísk / lífrænt vottuð, framúrstefnulegir miðar á flöskum, endurunnið gler notað og engin álpakkning á korktöppum.

Þeirra sýn er að hrista aðeins upp í hefðbundnu umhverfi víngerðar. Búa til nútímaleg vín og nálgast framleiðsluna með örlítið nýjum vinkli.

Aubert & Mathieu er „B Corp“ vottað vínhús. Þetta er alþjóðlegt merki sem fyrirtæki fá fyrir að uppfylla samfélags – og umhverfislegar kröfur og eru ábyrg og gagnsæ í starfsháttum.

Aubert & Mathieu vínin okkar