Sancerre „Cul de Beaujeu“ 2022
6.490 kr.
Þrúgur: 100% Pinot Noir
Styrkur: 13.5%
Dómar: Vivino 4.2 // Wine Enthusiast 94 stig.
„Cul de Beaujeu“ er flaggskip Domaine Delaporte í Pinot Noir rauðvínum og er býódýnamískt / lífrænt vottað vín.
Domaine Delaporte er eina vínhúsið sem framleiðir Pinot Noir rauðvín frá frægustu ekru Sancerre héraðsins: Cul de Beaujeu, sem er staðsett í hinni frægu Monts Damnés hlíð. Þetta er lítil ekra, einungis 1.25 hektarar.
Cul de Beaujeu er verulega flókið og aðlaðandi Pinot Noir rauðvín.
Hér er fullt af dökkum ávöxtum; hindber, rifsber og bláber. Ristað brauð, kakó og kaffi tónar hanga í bakgrunni. Cul de Beaujeu vínið er ríkt og áferðarmikið, með flauelsmjúkri fyllingu og silkimjúkum tannínum. Bragð af bláberjatertu og þroskuðum kirsuberávöxtum eru í forgrunni, með fínlegu leðri , Créme Brullé og jarðbundnum tónum.
Frábært jafnvægi og mikið flækjustig er lykillinn að þessu vandaða rauðvíni.
Eftirbragð vínsins er langt og elegant og einkennist af stökkum rauðum ávöxtum.
Þetta er algert eðal- Pinot Noir rauðvín, þótt við segjum sjálf frá!!
Lýsing
Domaine Delaporte vínhúsið er fjölskyldu fyrirtæki í eigu sömu fjölskyldu allt frá 17. öld. Vínhúsið er staðsett á besta stað í norðausturhluta Louire, Í hjarta Chavignol. Domaine Delaporte á 30 vínekrur á besta stað í Sancerre héraðinu og er eitt fyrsta lénið í Sancerre – Chavignol héraði Frakklands.
Vínhúsið er skilgreint sem eitt af „First rate Sancerre producers“ skv. vínbókinni The Wine Bible ( bls.186)
Vínhúsið bruggar einungis úr þeim Sauvignon Blanc og Pinot Noir þrúgum sem það ræktar á eigin ekrum. Kaupir ekki þrúgur annars staðar frá.
Uppskeran sem notuð er í Sancerre Cul de Beaujeu rauðvínið kemur frá einni ekru með 40+ ára vínvið. Þetta gefur víninu meiri dýpt og fyllingu.
Domaine Delaporte er lífrænt vottað vínhús. Öll uppskeran er unnin með handafli og enginn tilbúinn áburður eða skordýtaeitur er notaður. Malolaktísk gerjun fer fram að öllu leyti í eikartunnum sem eru eins til fjögurra ára gamlar.
Domaine Delaporte er vottað sem „A.O.S. Sancerre“ vínhús fyrir vínrækt sína. Einungis 14 þorp í Chavignol héraðinu eru með slíka vottun.




